Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á rekstri tölvukerfa til að starfa í rekstrar teymi á upplýsingatæknisviði bankans. Teymið vinnur að fjölbreyttum verkefnum þvert á samstæðu og býr yfir mikilli reynslu. Viðkomandi þarf að vera lausnamiðaður, viljugur til að læra og vera tilbúin að setja sig inn í tæknilega flókin mál.
Ef þú hefur brennandi áhuga á kerfisstjórnun og ert tilbúin(n) að stíga þitt næsta skref í kerfisrekstri í krefjandi og tæknilega flóknu umhverfi, þá gætum við verið að leita að þér.Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón upplýsingakerfa og annarra tæknikerfa Kviku
- Þátttaka í innleiðingu tæknilausna
- Reglulegt eftirlit með rekstri kerfa ásamt samskiptum við innri og ytri samstarfsaðila
- Eftirlit með öryggismálum upplýsingatæknikerfa
- Önnur tilfallandi verkefni á sviði upplýsingatæknimála
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla af Windows kerfisstjórnun
- Þekking og reynsla af rekstri Microsoft 365 umhverfis
- Þekking og reynsla af Azure og AWS
- Þekking og reynsla af Linux kerfisstjórnun er kostur
- Þekking á net og öryggislausnum er kostur
- Sjálfstæði og vönduð vinnubrögð
- Færni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
- Mikill áhugi á að læra nýja hluti
Kvika er öflugur banki með mikla áherslu á nýsköpun og stafrænt vöruframboð. Starfsumhverfið einkennist af samvinnu og sveigjanleika, með áherslu á frumkvæði starfsfólks, jafnrétti og gefur tækifæri til að starfa með fjölbreyttum hópi sérfræðinga með víðtæka reynslu.
Nánari upplýsingar veitir Birkir Svan Ólafsson, mannauðssérfræðingur, birkir.olafsson@kvika.is.Sótt er um starfið á umsóknarvef Kviku.Umsóknarfrestur er til og með 13. júlí 2025.